Það er líf handan kapítalismans rétt eins og það var líf handan lénskerfisins, handan borgríkjaskipulags forngrikkja, handan allra stofnana og kerfa sem birtast okkur sem tímalaus og endanleg.
Sýsifos flettir og flettir blaðsíðum bóka sinna, en þær virðast engan endi ætla að taka. Óþarft er að ímynda sér að Sýsifos sé hamingjusamur - því með góða bók í hönd er hann það óhjákvæmilega.
Margin of Safety: Risk-Averse Value Investing Strategies for the Thoughtful Investor var gefin út í aðeins 5.000 eintökum. Í fyrstu hlaut bókin ekki mikla athygli, sem Klarman kennir markaðssetningu bókarinnar um, en með tíð og tíma varð hún einstaklega vinsæl meðal sérstaks hóps fólks - grunngreiningarfjárfesta.
Bókin er þess eðlis að höfundurinn hikar ekki við að fleygja lesandanum endilöngum beint ofan í djúpu laugina. Frá fyrstu blaðsíðum bókarinnar nánast drukknar maður í óskiljanlegum tækniorðum sem mörg hver eru algerlega tilbúin og eiga sér nánast enga hliðstæðu.
Starship Troopers er vísindaskáldsaga eftir rithöfundinn Robert A. Heinlein. Hún var gefin út árið 1959 og fjallar fyrst og fremst um Johnnie Rico, ungan mann sem skráir sig í herinn rétt eftir að hann útskrifast úr menntaskóla. Sagan gerist í framtíðinni og eins konar alræðisstjórn hefur tekið við völdum á Jörðinni.